- Nánar
-
Flokkur: Æskulýðsnefnd
-
Skrifað þann Þriðjudagur, apríl 07 2009 22:12
-
Skrifað af Super User
Framtíðarknapar okkar hafa nú lokið bæði byrjenda- og framhaldsnámskeiðinu sem krakkarnir hafa tekið þátt í, í vetur.
Af því tilefni fóru krakkarnir í reiðtúr með kennara og nokkrum foreldrum í síðasta tímanum. Afhend voru viðurkenningarskjöl sl. föstudag og borðað saman í Harðarbóli. Skoðaðar voru myndir sem teknar voru á námskeiðunum. Hægt er að skoða myndirnar á eftirfarandi slóðum:
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Æskulýðsnefnd
-
Skrifað þann Fimmtudagur, apríl 02 2009 11:08
-
Skrifað af Super User
Lokatími framhaldsnámskeiðsins verður föstudaginn 3.apríl og lokatími byrjendanámskeiðsins verður sunnudaginn 5.apríl.
Að því tilefni verða afhent viðurkenningarskjöl í Harðarbóli föstudaginn 3.apríl kl. 19.30. Í boði verða hamborgarar sem Gummi Makker ætlar að reiða fram og svo skoðum við myndir sem teknar voru á námskeiðinu.
Æskulýðsnefnd
- Nánar
-
Flokkur: Æskulýðsnefnd
-
Skrifað þann Fimmtudagur, mars 26 2009 17:24
-
Skrifað af Super User
Nú er tíminn fyrir fjölskylduna að njóta tímans saman. Okkur vantar sjálfboðaliða
(foreldra, afa, ömmur og aðra fylgifiska) til að starfa í um það bil 2-3 klst þann 4. apríl í páska-ratleiknum við ýmis störf. Eflum liðs- og fjölskylduandann og takið þátt í þessum skemmtilega leik með því að hjálpa okkur. Sendið tölvupóst til Gyðu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
- Nánar
-
Flokkur: Æskulýðsnefnd
-
Skrifað þann Fimmtudagur, mars 26 2009 16:58
-
Skrifað af Super User
Þar sem vorið nálgast sem og páskarnir, verður haldinn þann 4. apríl nk. kl. 13.00, Páska-Ratleikur á hestum. Þetta er liðakeppni og í hverju liði eru 3 keppendur. Keppnin skiptist í yngri og eldri hópa sem keppa sín á milli og munu ríða mismunandi leiðir. Í upphafi keppni fá liðin kort sem sýnir hvert þeir eigi að ríða til að leysa fyrstu þraut. Þegar þrautin er leyst þá fær liðið nýtt kort sem sýnir hvert þau ríða næst og svo koll af kolli. Ekki er keppt í tímatöku í heildarkeppninni en það á að ríða skynsamlega á milli þrauta. Refsistig er gefið ef einn eða fleiri úr hópnum er skilinn eftir. Í öllum þrautum reynir á samvinnu, skipulagningu, prúðleika, hjálpsemi og svo náttúrulega aga, nákvæmni og hraða.
Nánar...