Miðasala á árshátíð

Félagsmenn athugið Harðarból er upptekið annaðkvöld þannig að miðasalan færist í reiðhöllina  miðvikudaginn 29. febrúar kl 20:00 - 21:30. Fimmtudaginn 1. mars í Harðarbóli kl 20:00 - 21:30. Munið aðeins 150 miðar í boði, fyrstir koma fyrstir fá.

 

Árshátíðarnefndin

Árshátíð Harðar 2012

Senn líður að Árshátíðinni okkarKiss eins og alltaf verður hin sívinsæli annáll, brrrrrr ég bíð spennt. ÉG veit að flest allir hafa einhverja punkta um félagan Embarassed endilega sendið okkur í nefndinni punkta This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Dagskrá árshátíðarinnar verður auglýst von bráðar.

ÁrshátíðarnefndinInnocent

 

Annáll Árshátíðar Harðar 2011

Maður er nefndur Guðjón Magnússon.  Guðjón sá hinn sami vinnur ekki bara ötult starf sem formaður okkar Harðarmanna heldur situr og stendur til skiptis með sveittann skallann í öllum mögulegum og ómögulegum nefndum víðsvegar um bæinn.  Þar má nefna Landsmótsnefnd, Þingvallanefnd, framhaldsskólanefnd, gömludansanefnd, gítar og tónlistarnefnd og meira að segja líkamsræktarnefnd.  Harðarfélagar eru þó latir í ræktinni og heyrst hefur að Guðjón og fallega konan hans séu einu Harðarmennirnir sem stunda ræktina að einhverju ráði.  Guðjón fann nefnilega út að hægt væri að horfa á Bold and the beautiful á hlaupabrettinu og síðan þá hefur hann verið nær óstöðvandi.

Nánar...

Miðasala á árshátíðina

Alltaf sætar :) Anna og dæturnarMinnum á að miðasalan á árshátíðina er í kvöld þriðjudag og á morgun miðvikudag kl. 20-21 í reiðhöllinni. 

Gerum okkur glaðan dag saman... og koma svo!

Hver verður karlremba Harðar í ár? Taktu þátt í að kjósa þína ...rembu. 

Tryggðu þér og þínum miða tímalega, aðeins 150 miðar í boði!

Hver verður karlremba Harðar 2011 - kjóstu

Aðalstjórn hefur ákveðið að taka aftur upp að kjósa karlrembu Harðar. Fyrir 10 árum síðan datt þessi hefð upp fyrir en þá hlaut titilinn Karlremba ársins, Össi grái. 

Það eru félagsmenn sem kjósa og er það gert undir leitarstikunni vinstra megin en einnig má senda tillögur að nöfnum á netfangið: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Karlremba ársins verður svo "krýnd" á árshátíðinni sem verður nk laugardag. Nú er bara að velja þinn mann...

60 ára afmælisárshátíð Harðar nálgast

Anna og stelpurnar 2009Afmælisárshátíð Harðar nálgast óðfluga en nú er nákvæmlega vika í þessa stórskemmtun. Síðustu forvöð að tryggja sér miða er á þriðjudaginn nk (23. febrúar). Ekki verður sérstök miðasala aftur en það er hægt að fá miða með því að hitta á Gumma Makker eða hringja í hann í GSM 856-5505.

Sjá nánar um árshátíðína SMELLA HÉR

Á R S H Á T Í Ð 5. M A R S

Árshátíð Harðar verður haldin í Hlégarði laugardaginn 5. Mars.

Mæting kl. 19.00  Fordrykkur: Kyrr, hvítvínsdrykkur með líkjör.

Forréttur :  Humarsúpa með Humarskjóðu og kampavínsfroðu.

Aðalréttur:  Innbökuð Nautalund Wellington með kryddjurtasósu  fersku rótargrænmeti ,og fondant kartöflum. 

Eftirréttur:  Créme Brulée Grand Marniere. 

Hljómsveitin Bob Gillan og strandverðirnir leika fyrir dansi fram á nótt. 

Miðar verða seldir í reiðhöllinni, eftir kl. 17.00 á daginn, miðaverð er 7000.- kr.  Í fyrra var uppselt og mættu 200 manns á frábæra skemmtun, í ár verða aðeins 150 miðar í boði og fyrstir koma fyrstir fá.!

60 ára afmælisárshátíð hestamannafélagsins Harðar!

Árshátíð Harðar 2009Nú er komið að því kæru félagsmenn! Það er kominn tími til að við sameinumst sem aldrei fyrr og gleðjumst yfir glæsilegri sögu félagsins, nýju flottu reiðhöllinni okkar og komandi ævintýrum! 

Í tilefni af 60 ára afmæli hestamannafélagsins verður árshátíð Harðar með breyttu og sérstaklega glæsilegu sniði í ár. Veislan verður haldin þann 27. febrúar næstkomandi í spánýjum og virðulegum veislusal Mosfellinga í Hraunhúsum (Ístexhúsið). Aðstaða er öll hin flottasta og

Nánar...