KVENNADEILD STOFNUÐ

Mánudagskvöldið 26. janúar var stofnuð kvennadeild í Herði. Alls mættu uþb. 30 konur og var sett niður metnaðarfull dagskrá. Kvennadeildin hefur að sjálfsögðu sérstaka undirsíðu á heimasíðu félagsins og er hana að finna hér til vinstri og þar má sjá dagskrá vetrarins. Allar áhugasamar Harðarkonur eru velkomnar í hópinn en aldurstakmark eru 20 ár. Farið verður í fyrsta kvennareiðtúrinn frá naflanum laugardaginn 31. janúar kl. 16:00