Fákur kemur

Á laugardaginn kemur, þann 6. maí munum við taka á móti nágrönnum okkar í Fáki sem koma ríðandi til okkar að venju. Lagt verður af stað til móts við þau frá naflanum klukkan 13.00.  Matarmikil súpa og meðlæti í reiðhöllinni eftir reiðtúr.

Höldum í þessa skemmtilegu hefð og fjölmennum að taka á móti Fáksfólki!