Knapamerki 1 – Námskeið - bóklegt og verklegt - Haust 2022

Knapinn öðlast vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum:

- Að undirbúa hest rétt fyrir reið
- Geta teymt hestinn á múl eða beisli við hlið sér á feti og brokki/tölti
- Geta farið á og af baki beggja megin
- Kunna rétt taumhald og að stytta rétt í taumi
- Geta setið hest í lóðréttri (hlutlausri) ásetu á feti, tölti/brokki og hægu stökki
- Geta framkvæmt nokkrar sætisæfingar í hringtaum skv. stjórnun frá kennara
- Geta skipt á milli hlutlausrar ásetu, hálfléttrar og stígandi ásetu (1. stig stígandi áseta)
- Kunni að skilja rétt við hest og búnað að reiðtíma loknum
Kennt verður 3 bóklega (1,5h) og 10 verklegir tímar (plús verklega próf og bóklega próf),
Námskeið byrjar á bóklega tíma 3.október 2022 Kl 1700-1830, Aldurstakmark er 12 ára.

Dagsetningar:
Bóklegar tímar í Hardabol á mánudögum og fimmtudag í október:
3.10, 10.10. og 13.10.  kl 1700-1830
Bóklegt próf mánudaginn 17. október 2022 – í Hardarboli Kl 1800-1900

Verklegar tímar á mánudögum og fimmtudögum kl 18-19 í nóvember/desember
3. / 7. / 10. / 14. / 17. / 21. / 24. / 28. nóvember 2022
01. & 05. desember
Verklegt Próf: 08 desember2022 Kl 18-19
Kröfur til hestsins: Hesturinn verður að vera spennulaus og rólegur. Hesturinn þarf að hringteymast og fara um á brokki án vandarmála.
Kennari : Sonja Noack
Verð: Ungmenni 35.000 krónur með prófi og skírteini
Verð: Fullorðnir 45.000 krónur með prófi og skírteini
Verð: bara bóklegt 12000 bara fyrir þá sem eru búin með verklegu 1.

Skráning:
 
kn1.jpg