MINNUM Á FYRIRLESTURINN Í DAG KL.20.00

MINNUM Á FYRIRLESTURINN Í DAG ÞRIÐJUDAG KL. 20.00

 

Þriðjudaginn 23 febrúar næstkomandi kl 20:00 mun Dr.Hrefna Sigurjónsdóttir vera með fyrirlestur í Harðarbóli um félagslyndi hesta- hvað það er sem hefur áhrif á samskipti þeirra.   Greint verður frá rannsóknum á félagshegðun íslenska hestsins hér á landi sem höfundur hefur unnið að frá 1996 með íslenskum og erlendum vísindamönnum og stúdentum. Um er að ræða rannsóknir á litlum sem stórum hópum úti við sem eru mismunandi að s...amsetningu hvað varðar hlutfall kynjanna og aldursflokka. Greint verður frá því hvað hefur mest áhrif á árásargirni og jákvæð samskipti, eins og gagnkvæma snyrtingu og leik.   Einnig verður greint stuttega frá könnun sem höfundur gerði árið 2003 á algengi húslasta hér á landi.

  Kveðja fræðslunefnd Harðar