Hestadagar settir í Hörpu í gær.

Hestadagar voru settir við hátíðlega athöfn við Hörpuna í gær.  Skrúðreið fór frá Sólfarinu að Hörpunni.  Þar voru fulltrúar frá öllum hestamannafélögum á Höfuðborgarsvæðinu.  Fulltrúar Harðar voru Anthon Hugi og Súsanna Katarína.  Við lánuðum Sóta einn fánabera og var það Hrönn Kjartans.  Hinrik Ragnar var með íslenska fánann.  Þannig að Hörður átti 4 fulltrúa í þessari reið.  Eftir reiðina var sýningin Hestaat frumsýnd og er það aljgörlega frábær sýning sem hægt er að mæla með.  Allir Harðarfulltrúar fóru síðan á sýninguna.

hestar í hörpu