Allir í einkunn 3

Stefnan sett á 3 í einkunn


Eins og flestum mun kunnugt eru beitarhólf sem félagið leigir út til félagsmanna tekin út í lok beitartímans 10. September ár hvert af utanaðkomandi hlutlausum aðila. Í bréfi frá þessum aðila sem er starfsmaður Landgræðslu ríkisins segir m.a.: „Farið var að hverju beitarhólfi og ástand þeirra metið út frá ástandsskala sem kemur fram í bæklingnum „Hrossahagar, aðferð til að meta ástand lands" sem gefinn var út árið 1997 af Rannsóknarstofnun Landbúnaðarins og Landgræðslu ríkisins. Samkvæmt þeirri einkunnagjöf er land sem fær einkunnina 0 eða 1 í besta ástandi og engra sérstakra aðgerða þörf, á meðan land sem fær einkunnina 5, í versta ástandi og með öllu óhæft til beitar".
Þessi skali er sértaklega gerður miðað við úthagabeit í stærri girðingum eins og tíðkast til sveita. Strax eftir að farið var að nota hann við úttekt hjá félaginu var hann lagaður og staðfærður að reiðhestabeit í þrengri hólfum. Sýnt þótti að hann hentaði ekki alveg að þeim aðstæðum og notkun sem hér var viðhöfð. Viðmiðunarmarkið við hæfilegri beitarnýtingu í lok tímabils var því ákveðið einkunn 3.
Útkoman á þeim tíma sem hestamannafélagið hefur staðið fyrir útleigu hólfa hefur alla tíð verið í því sem kalla má viðunandi horfi að því leiti að langflest hólfin hafa verið í einkunn 3 en ekki þó alveg öll. Undantekningar hafa þó aldrei farið yfir fimm en það sem kannski verra er að í langflestum tilvika hefur verið um að ræða mikið til sömu hólfin. Í nánast öllum tilvika hefur verið um að ræða mistök í beitarstjórnun þannig að stykkin hafa verið ofbitin að hluta til en að hinum hlutanum í góðu eða skárra ástandi. Góð beitarstjórnun snýst um fjölda hross og tímalengd. Því fleiri hross, því styttri ending beitar.
Þá þarf einnig að huga vel að beitarfyrirkomulagi síðustu þrjár til fjórar vikurnar til að tryggja að hólfin verði í ásættanlegu ástandi við úttekt þann 10. September ár hvert.
Nú hefur beitarnefnd ákveðið í góðu samráði við bæjaryfirvöld og að tilmælum fulltrúa Landgræðslunnar að stefna að því að öll hólfin verði í einkunn 3 eða ofar á þessu ári. Til að tryggja að þessum áfanga verði náð mun nefndin í samvinnu við dýraeftirlitsmann Mosfellsbæjar fylgjast betur með framvindu mála, sérstaklega þegar kemur fram yfir mitt sumar og leiðbeina fólki um hvenær þarf að fjarlægja hross eða fækka svo hólfin nái að jafna sig hafi verið mikið beitt fyrri hluta tímabilsins.
Einnig mun nefndin birta hér á heimasíðunni fróðleikskorn sem að gagni geta komið við beitarstjórn.
Sem sagt kjörorð sumarsins verður því „Allir í einkunn 3".

Beitarnefnd