Lýsing

Kæru Harðarfélagar

Mitt nafn er Auður og starfa sem hestanuddari/hestameðferðaraðili
í Hestanudd og heilsu.

Markmið mitt er að stuðla að almennri heilsueflingu fyrir hross á
öllum aldri og öllum stigum þjálfunar.
Ég er menntuð frá Nordisk heste- og hundeterapiskolen í Noregi sem
er einn af betri skólum í Noregi í sjúkraþjálfun og endurhæfingu
fyrir hesta.

HVAÐ ER HESTANUDDARI/SJÚKRAÞJÁLFARI?

Hestanuddari metur og meðhöndlar hesta sem orðið hafa fyrir skaða
eða meiðslum eða sýna merki um einhvers konar vandamál í
hreyfingum eða frammistöðu.

Hestanudd eða hestameðferð sameinar hreyfigreiningu og þekkingu á
líffæra- og stoðkerfi hestsins til að koma auga á þau vandamál
sem geta verið til staðar og getu til að finna hugsanlegar lausnir og
meðferðir.

Í náminu hef ég fengið víðtæka þjálfun í að greina og meta
meiðsli eða vandamál, sérstaklega í mjúkvefjum (t.d. vöðvum) og
stoðkerfinu, sem geta svo leitt til heltis eða annarra vandamála í
hreyfigetu hestsins.

Með því að nota fjölbreyttar aðferðir og geta gert alhliða mat
á ástandi hestsins get ég gefið fagmannlega þjónustu við hest og
eiganda til að veita hestinum bestu möguleika á að vera í sínu
besta líkamlega ástandi og framkvæma það sem til er af honum
ætlast.

Ég nota ýmsar aðferðir í minni meðhöndlun, byggt á þörfum
hvers og eins. Meðal þess sem ég býð upp á er: almennt nudd,
sjúkranudd, hnykkingar, teygjur, þrýstipunktameðferð (trigger point
therapy, sjúkraþjálfun, endurhæfingu og acupressure. Ekki síst er
ég tilbúin að veita fræðslu og ráðgjöf ef þess þarf.

Verð:

Fyrsti meðferðartími (90 mín) : 7.000 kr

Eftirmeðferð (60 mín) : 6.000 kr.

Tímabókanir: 8885052 / hestanuddogheilsa@gmail.com eða facebook:
https://www.facebook.com/hestanuddogheilsa/ [1]

Hlakka til að heyra frá ykkur :) Kær kveðja Auður
Sent / Sótt
Nýtt

Hafðu samband

You don't have the right to see the ad contact
nopic