Dagskrá vetrarins 2003 - 2004

Jæja félagar Nú eru drög að dagskrá æskulýðsnefndar komin á netið. Dagskráin gæti tekið einhverjum breytingum en þær verða uppfærðar á síðunni. Ath. að ekki er búið að raða niður mótum vetrarins. <<<<<<<<<<<<<< Dagskráin er á síðu æskulýðsnefndar.

Skráning á námskeið fyrir unglinga og ungmenni.

Skráning á námskeið fyrir unglinga og ungmenni.  Kennarar verða Sigurður Sigurðarson og Trausti Þór Guðmundsson. Skráning miðvikudaginn 19.mars kl. 19-20 í Harðarbóli. Kennt verður á mánudögum. Fyrsti tími mánudaginn 24.mars.  Stefnt er að því að enda svo námskeiðið á ævintýraferð til Hestheima í maí.    Verð er kr. 6000.- en þar af ganga 2000.- í ævintýraferðina.

Árshátíð unglinga.

Árshátíð unglinga verður haldinn í Sörla föstudaginn 21.mars 2003. Húsið opnar kl.19:30. Miðaverð 1.500.- Allir unglingar hvattir til að mæta. Miðasala er hjá Helgu S:896-7434 og Pétri 896-6060.