Gangtegundir og reiðmennska.

Fimmtudaginn 6. mars næstkomandi mun hinn geðþekki hestamaður Einar Öder halda fyrirlestur um gangtegundir og reiðmennsku.  Fyrirlesturinn verður í Harðarbóli, er öllum opinn og hefst kl.20.00.  Aðgangur er ókeypis og léttar veitingar í boði. 

Fræðslunefnd.

Keppnisnámskeið fyrir konur og almennt reiðnámskeið.

Hinn þekkti hestamaður Erling Sigurðsson heldur keppnisnámskeið eingöngu ætlað konum. Námskeiðið er 8 skipti og kostar 15.000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 20.000 fyrir aðrar. Í lok námskeiðs taka konurnar þátt í hinu árlega kvennatölti Gusts.

Samhliða verður almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna. Námskeiðið er 8 skipti og kostar 15.000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 20.000 fyrir aðra. Kennt verður eftir hádegi á sunnudögum og hefjast námskeiðin 3. febrúar.

Takmarkaður fjöldi kemst að, fyrstir koma fyrstir fá.

Skráning og upplýsingar hjá Helenu Jensdóttur 699 2797 This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. til og með mánudagsins 28. janúar.

 

Sundlaugarferð

Harðarfélögum hefur verið boðið að kynna sér nýju hestasundlaugina í Víðidal. Farið verður með rútu frá félagsheimilinu föstudaginn 16.mars kl. 19.30 Fargjaldið kostar 300 krónur á mann. Skráning hjá Hönnu fram á fimmtudagsmorgun kl. 10.00 í síma 6992883 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
PS. Játi mætir með Klaka í sundlaugina.

Knapamerki fyrir fullorðna.

Reynir Örn Pálmason reiðkennari heldur námskeið í hinu vinsæla knapamerkjakerfi, ætlað fullorðnum. Hestar sem henta á Knapamerkjanámskeið þurfa að vera með hreinar og öruggar gangtegundir, (skeið ekki nauðsynlegt). Þeir eiga að vera vel tamdir, þekkja og svara helstu ábendingum og vera spennulausir. Nánari upplýsingar um knapamerkin er að finna á http://www.holar.is/knapamerki/ .
Kennt verður á fimmtudögum og hefst námskeiðið 1. mars. Verð er 15.000. Miðað er við lágmark 4 nemendur.
Skráning og upplýsingar hjá Margréti í síma 824 7059 eða terrier @ internet.is.

Helgarnámskeið

Kennarar:Dr. Susanne Braun; Fagdýralæknir fyrir hesta – sérgrein hnykkingar, B-þjálfari frá Þýskalandi. Petra Mazetti; Tamningamaður frá Hólaskóla og tamningapróf frá Þýskalandi, Centered Riding Reiðkennari, Skynhreyfiþjálfari (sjúkranudd og æfingar fyrir fólk).

Verð er 14.000, 3000 króna staðfestingargjald greiðist við skráningu.
Skráning hjá Margréti í síma 824 7059 og á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Nánar...

Konunámskeiðið!

Minnum á að skráningu á námskeið eingöngu ætlað konum hjá Oddrúnu Ýr Sigurðardóttur, sem hefst 17. mars, lýkur 10. mars og eru örfá pláss laus. Við skráningu tekur Margrét í síma 8227811 og á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Námskeiðið er 8 skipti. Verð er 12.000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga en 18.000 fyrir aðrar. Kveðja, Fræðslunefnd Harðar

Fyrirlesturinn fellur niður !

Fyrirlestur Sigurðar Torfa Sigurðssonar um járningar, þriðjudagskvöld 30. janúar kl. 20:00, FELLUR NIÐUR! Nokkur pláss eru enn laus á námskeiðið um næstu helgi, skráning á hanna73 @ simnet.is og upplýsingar í síma 699 2883.

Laugardagsfræðsla

Næstkomandi laugardag 4. mars klukkan 11:00 verður hinn geðþekki dýralæknir Björgvin Þórisson með fyrirlestur um tannhirðu hrossa auk þess að svara almennum fyrirspurnum í Harðarbóli. Látið þetta tækifæri til að fræðast um heilsu hrossa, og borða góðan morgunmat að auki, ekki framhjá ykkur fara! Verð er 500.- kr fyrir fullorðna, 200.- krónur fyrir unglinga og ungmenni og frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Allir velkomnir, Fræðslunefnd Harðar.

Járninganámskeið og fyrirlestur.

Sigurður Torfi Sigurðsson járningameistari og formaður Járningamannafélags Íslands heldur fyrirlestur um járningar í Harðarbóli þriðjudaginn 30. janúar 2007, kl.20:00. Aðgangseyrir er 500 krónur. Veitingasala á staðnum. Í framhaldinu mun Sigurður kenna á járninganámskeiði helgina 2.-4. febrúar 2007, bæði fyrir byrjendur og lengra komna, sem Hestamannafélagið Hörður stendur fyrir.

Nánar...

Reiðnámskeið fyrir fullorðna

Reynir Örn Pálmason reiðkennari heldur almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna. Kennt verður á þriðjudögum eða fimmtudögum frá kl:20.00 og hefjast námskeiðin 21. og 23. febrúar og standa í 8 vikur. Verð er 12.000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga en 18.000 fyrir aðra. Skráning og upplýsingar hjá Margréti í síma 8227811 og á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. til og með 19. febrúar.