Skráning á Íslandsmót yngri flokka!

Harðarfélagar  - Skráning á Íslandsmót yngri flokka

 

Miðvikudagskvöldið 13. Júní verður skráning á Íslandsmót yngri flokka fyrir Harðarfélaga í félagsheimilinu Harðarbóli, Varmárbökkum, kl. 20-21. Íslandsmótið fer fram hjá Hestamannafélaginu Gusti, Kópavogi dagana 21.-24. Júní næstkomandi.  Einnig verður hægt að skrá í gegnum síma í nr: 5668282.
Skráningargjald er 3.000 kr á skráningu og minnum við knapa á að vera með is númer hrossanna.
Heimilt er að skrá fleiri en einn hest í hverja grein, en komi knapi fleiri en einum hesti í úrslit skal hann/hún velja einn hest til úrslitakeppni.

Vonandi sjáum við sem flesta unga Harðarmenn mæta og skrá sig!

 

Kv, Mótanefnd