Knapaþjálfun – Reiðnámskeið fyrir fullorðna - Nýtt námskeið

SKRÁNING OPNAR Í KVÖLD - 21.mars - KL 20:00
 
Hestaíþróttir eru ekki frábrugðnar öðrum íþróttum, að því leyti, að til þess að hámarksárangur náist þurfa hestur og knapi að vera í góðu líkamlegu ástandi. Markmið í þjálfun hesta er fyrst og fremst að auka endingu þeirra og að þeir geti stöðugt verið að bæta sig.
Þegar kemur að knöpunum sjálfum er ekki síður mikilvægt að huga að sama markmiði. Hestamennska getur verið krefjandi líkamlega og ef ekki er hugað að réttri líkamsbeitingu er hætt við að ending okkar í faginu verði ekki löng. Jafnvægi, styrkur og þol eru mikilvægir þættir og geta stuðlað að miklum framförum í reiðmennsku, knapar í góðu formi líkamlega og andlega koma alltaf til með að standa betur að vígi en þeir sem ekki búa yfir sömu eiginleikum.
Bergrún Ingólfsdóttir er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum ásamt því að vera einkaþjálfar frá ÍAK. Hún hefur mikið verið að vinna með knöpum í að bæta líkamsbeitingu sína á hestbaki og kenndi meðal annars Knapaþjálfun á Hólum í 4 ár. Núna stundar hún tamningar og þjálfun, ásamt því að halda fyrirlestra og kenna Knapaþjálfun.
10. apríl Fyrirlestur og líkamsstöðugreining - Í félagsheimili, byrjar kl 17:30 - 20:00
17. apríl Reiðtímar - 30 mín einkatímar Blíðubakkahöll
milli 17:00 - 20: 00
24. apríl Æfingar og líkamsbeiting - 1,5 klst í Félagsheimili
08. maí Reiðtímar - 30 mín einkatímar Blíðubakkahöll
milli 17:00-20:00
Verð: 28000kr
04d05fb8-b3d5-401f-b053-382e1bf1dabb.jpg
 
9857f6db-912d-46bf-afc8-dd821aea398c.jpg