Aðalfundur Harðar 2016

Aðalfundur hestamannafélagsins Harðar var haldin í gærkvöldi. Marteinn Magnússon var kosinn fundarstjóri og stýrði hann fundinum með prýði og þökkum við honum fyrir það.

Úr stjórn gegnu Ólafur Haraldsson, Gylfi Þór Þorsteinsson, Sigurður Guðmundsson og Gunnar Steingrímsson og formaður okkar til 4 ára Jóna Dís Bragadóttir.
Þökkum við þessu sómafólki fyrir vel unnin störf.

Ný stjórn Harðar er tekin til starfa og hana skipa:

Hákon Hákonarson formaður
Ragnhildur Traustadóttir
Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Alexander Hrafnkelsson
Haukur Níelsson
Gígja Magnúsdóttir
Gunnar Valsson
Sveinfríður Ólafsdóttir
Rúnar Guðbrandsson

Bjóðum við nýja stórnarmeðlimi og formann velkomin til starfa.

Fundargerð aðalfundar verður birt hér á vefnum erfir nokkra daga.

Kveðja

Hestamannafélagið Hörður