"Eldri kynslóðinni" í Herði er boðið í súpu og brauð föstudaginn 4.mars kl.11.30

Hestamannafélagið langar að bjóða "eldri kynslóðinni" í Herði í súpu og brauð föstudaginn 4.mars kl.11.30 í Harðarbóli.  Þar ætlum við að sýna ykkur kvikmynd og gamlar ljósmyndir frá liðinni tíð í félaginu.  Einnig væri gaman ef þið eigið gamlar myndir til að sýna okkur.  Endilega látið þetta spyrjast og hvetjið gamla félaga til að koma og fá sér súpu og taka létt spjall.