OPNUN HESTADAGA Í RÁÐHÚSINU Í REYKJAVÍK

Muna ekki allir eftir Hestadögunum sem byrja á fimmtudaginn?  Öllum hestamönnum er boðið á opnun Hestadaganna í Ráðhúsinu í Reykjavík fimmtudaginn 19.mars kl.17.00. Boðið verður uppá léttar veitingar og sýndar verða gamlar myndir frá upphafi hestamennsku á Höfuðborgarsvæðinu.

 

HESTADAGAR