Stjórn|
Nefndir
| Félagsheimili|Reiðhöll|Um Hörð|Hafa samband
Skráning í felagið

:: september 2010

sunmánþrimiðfimföslau
01020304
05060708091011
12131415161718
19202122232425
2627282930

:: Kannanir

:: Hver er inni

Við höfum 15 gesti og 1 meðlim tengda
Æskulýðsstarf
Keppniskrakkar og foreldrar
Skrifað af Katrín Sif Ragnarsdóttir   
mánudagur, 31 maí 2010

 

Minnum á fundinn í kvöld kl.19.30 í félagsheimilinu með keppniskrökkum og forráðamönnum. Efni fundarins er ástandið á hrossunum og möguleikar fyrir úrtöku og áframhaldandi keppni. Hvetjum alla til að mæta.

 

Æskulýðsnefndin

 
Lokahóf
Skrifað af Katrín Sif Ragnarsdóttir   
miðvikudagur, 26 maí 2010

Á morgun fimmtudaginn 27.maí kl.19:00 verður lokahóf fyrir alla krakka í hestamannafélaginu Herði. Veittar verða viðurkenningar til þeirra sem hafa verið á almennu námskeiðunum í vetur. Við ætlum að fara í bingó og fá okkur léttar veitingar. Allir velkomir.

 

Æskulýðsnefndin

 
Keppniskrakkar og foreldrar
Skrifað af Katrín Sif Ragnarsdóttir   
miðvikudagur, 26 maí 2010

Á mánudagskvöldið 31.maí verður fundur í félagsheimilinu kl. 19:30 með keppniskrökkunum og forráðamönnum þeirra til að ræða framhaldið á keppnisnámskeiðinu og ástandið á hestunum fyrir úrtöku.

Æskulýðsnefndin

 
Skemmti- og fræðsluferð unglinga,ungmenna og barna.
Skrifað af Katrín Sif Ragnarsdóttir   
miðvikudagur, 26 maí 2010

Á laugardaginn næstkomandi ætlum við að fara í hina mögnuðu skemmti- og fræðsluferð um suðurland. Drífum okkur út úr bænum með nesti og nýja skó, kíkjum við á nokkrum hestabúum og kynnum okkur þjálfun og undirbúning hesta fyrir keppni. Lagt verður af stað kl.10 um morguninn og áætluð heimkoma er kl.17 og á að enda ferðina í félagsheimilinu þar sem við gerum eitthvað skemmtilegt og borðum saman.

Ferðin kostar ekkert og er ætluð þeim krökkum sem hafa verið á keppnisnámskeiðinu í vetur ásamt því að allir aðrir krakkar í Herði sem hafa áhuga á þjálfun og keppni eru velkomin.

Skráning þáttöku er í s.8971036 Ingimundur Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eigi síðar en fimmtudagskvöld.

 

Æskulýðsnefndin

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 8 af 214