Stjórnarfundur Harðar, 8. maí 2018

FUNARGERÐ STJÓRNARFUNDAR HESTAMANNAFÉLAGSINS HARÐAR

Dagsetning:    08.05.2018

Staður:            Harðarból

Tími:                17:30-19:00

Mættir:           Hákon Hákonarson, Ragnhildur Traustadóttir, Anna Lísa Guðmundsdóttir, Gunnar Valsson, Erna Arnardóttir, Rúnar Guðbrandsson, Kristinn Már Sveinsson, Gígja Magnúsdóttir, Haukur Níelsson.

Fjarverandi:    Telma Davíðsdóttir.

Gestir fundarins: Telma Davíðsdóttir er áheyrnarfultrúi ungmenna á fundinum, hefur málfrelsi og tillögurétt en hefur ekki rétt til að greiða atkvæði ef til hennar kemur.

 

 

Efni fundarins

Ákvörðun

Ábyrgur

 

1

Yfirferð um viðburð helgarinnar:

Rekstur hrossa

Á fimmtudagsmorgun sluppu hross í rekstarhring og hlupu upp í hverfi.  Valdimar hefur skilað formanni og stjórn skýrslu um atvikið og mikið hefur verið fjallað um atvikið á samfélagsmiðlum.  Rekstrarhópurinn hefur ákveðið að hætta rekstri í bili, en ekki er vitað með aðra hópa.

Ástæða atviksins er sú að mönnun rekstarhringsins með 4 manneskjur með 40 hross er ekki næg, sérlega þegar band sem halda á stóðinu í götunni við hestúsin er tekið niður, eða slitnar einhverra hluta vegna.

 

 

 

1

Yfirferð um viðburð helgarinnar:

Íþróttamót Harðar:

Mótanefnd stóð sig firnavel í framkvæmd íþróttamótsins. Allt gekk smurt þrátt fyrir leiðindaveður og metskráningar. Allir sjálfboðaliðir og mótanefnd stóðu sig frábærlega vel þrátt fyrir smá byrjendaörðugleika með Sport-Feng. Veitinganefndin stóð sig vel og stjórnin er mjög ánægð með mótanefndina og aðra sjálfboðaliða.

 

Fáksreiðin;

19 manns komu úr Fáki í hinni árlegu reið sem fram fór sama dag og íþróttamót Harðar.  Þann sama dag var heldriborgarferð Fáksfélaga á Njáluslóðir og þátttakan mjög lítil. Veitinganefndin undirbjóð móttöku með súpu og brauði og sætabrauði, en það tókst að selja veitingar þátttakendum og starfsmönnum íþróttamóts.

 

 

 

 

 

2

Framkvæmdaáætlun ársins:

 

Bæjarstjórnin vill halda undirskriftarathöfn við Hörð til að skrifa undir samstarfssamning við bæinn.  Þetta er gott pr fyrir núverandi meirihluta og Herði að meinalausu með öllu.

2017: Fengum við 3,8milj í framlag tilbarna og unglingastarfs.  En núna 2018 fáum við  4,4 milj.

10 Líkamsræktarkort þarf að auglýsa á netinu og óska eftir umsóknum skv. fyrri ákvörðun stjórnarinnar.

 

 

Það sem er í framkævæmdaáætlun eru eftirfarandi verkefni:

Harðarból:

Mála þakið á gamla hlutanunm

Mála nýja hlutann að utan

Laga þakkantinn á gamla hlutanum

Smíða grindverk við noður hlið Harðarbóls

Lýsingu í gamla salinn (til eru 250.000 krónur eyrnamerktar fyrir það)

Hitaofna í samla salinn

Steypa stétt kringum vestur og suðurenda Harðarabóls

Smíða/kaupa skápa utanum ruslagáma

 

Áttavilltir hafa ákveðið að gefa pennga til framkvæmda í Harðarbóli en kanna þarf hvort þeir eru tilbúnir að inna vinnu af hendi,

 

Reiðhöllin

Nýtt hitakerfi  (búið)

Forhitari (búið)

Vökvunarkerfi

Rennur og snjógildrur  (búið að semja um það – verður gert í vor 2018)

Lagfæra göt á þaki

Þrífa höllina að innan

Hvítta hliðarbatta

Ganga frá bíðastæði við norðurhlið

Traktor eða liðléttingur til að slóðadraga

 

 

Hringvöllur:

Hefla völlinn (búið)

Laga hvítu rörin (búið)

 

Önnur verkefni utanhúss:

Bæta Harðarbóli á skilti við Hindisvík og setja lýsingu

Snyrta aðkeyrsluna að Harðarbóli, merkja og setja upp fánastangir

Laga hvíta gerðið og efnið í því

Stækka og bæta mulningi í kerrustæðið, merkja þau og gera drög að leigusamningum

Stækka og girða af rúllubaggastæðið, gróðursetja og gera drög að leigusamningi

 

 

 

 

 

3

Reikningur vegna efnis norðan við Reiðhöll

Jón Sverrir í Varmadal bauð hestamannafélaginu 10 bíla af efni fyrir 150.000 krónur sem er gott tilboð vegna þess að hann gæti notað ferðina heim og sturtað síðasta hlassinu þarna.  Stjórnin samþykkti þetta.  Jón Sverrir kemur með mun fleiri en 15 bíla. Haukur tók eftir því að svo var. Haukur bað hann um að senda reikning fyrir umsömdu verki, Hákon ítrekaði það sama við hann.

Félaginu barst síðan reikningur frá vörubílastöðinni Þrótti 1.395.000 m. Vsk. Fyrir 35 bíla á 30.000 krónur og 75.000 kronur fyrir gröfuvinnu.

Hákon fékk hann til að fella reikninginn niður, sem var gert vegna þess að þetta var ekki skv. munnlegu tilboði. 

Engin ákvörðun tekin á fundinum. Hákon biður fólk að hugsa þetta.

 

 

 

 

 

4

 

Stefnumótun – Framhald

Erna, Hákon, Anna Lísa og Rúnar munu taka málið lengra og fá Runólf til að aðstoða við að gera stefnuplagg.

 

 

 

 

5

Önnur mál:

Beitarnefnd:

Beitarnefnd sendi formanni athugasemdir um að fresta breytingum á úthlutunarreglum.

Umræða var um málið og skiptust stjórnarmenn á sjónarmiðum. Gígja vildi meina að málið snérist um „hreintungustefnu“ en aðrir stjórnarmenn ósammála því, og telja að beitarnefnd vilji ekki fara að vilja stjórnarinnar með því að nota endurnýjaðar úthlutunarreglur. Þá misskilur beitarnefnd stjórnkerfi Harðar, en stjórn fer með málefni félagsins og er æðsta stjórnvald þess.

Hákon mun kalla eftir athugasemdunum sem nefndin gerir, enda hafa þær ekki verið sendar til okkar.

Þolreið á vegum Harðar í tengslum við Landsmót:

Þórarinn í Laxnesi hefur ámálgað við formann samstarf um þolreið í tengslum við Landsmót í Reykjavík 2018.  Dræmt tekið í þá beiðni af stjórn. Erfiðlega myndi ganga að manna sjálfboðaliða auk þess sem hugsanlegir þátttakendur, yngra fólkið, er í önnum vegna úrtöku og landsmóts sjálfs. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


1

Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Hákon mun fara í skýrslugerðina vegna fyrirmyndarfélagsins og mun nota gögn frá því í fyrra og hitteðfyrra

Hákon sendir inn skýrslu

   

2

Reiðhallarsýning 4. Apríl

Í undirbúningi og verður kl. 19:00-20:00 þann 4. Apríl og er sýnisgluggi á það hvernig unnið er inni í reiðhöllinni. Erna og Súsanna sjá um málið. Verður auglýst á heimasíðu, Facebókarsíðu Harðarog í Mosfellingi.

Málið í vinnslu

   

3

Dimbilvika Spretts

Einn hestur frá Dalllandi sem er meri sem Kári Steinsson er með, Halldór Guðjónsson er erlendis og þess vegna kemst Glymur ekki.

Einn hestur frá Steina Aðalsteinssyni– Kraftur frá Árseli sem Siggi Matt er með

Kjósarmenn  ætluðu að mæta fyrir hönd Adams í Kjós en þeir eru hættir við

Málinu lokið

   

4

Hitakerfi í reiðhöll

Efni og forhitari kostar 1.027.000 m. Vsk. En píparinn býður 777.0000 m. Vsk.  Á móti koma bætur frá tryggingafélagi vegna tjóns sem  varð þegar element sprakk og vatnstjón varð á fatlaðraklósettinu fyrir u.þ.b. mánuði. Tilboð frá Rafblikk liggur fyrir.

Óskað verður eftir styrk frá bænum fyrir þessum framkvæmdum. Félagið á núna 7.800.000 krónur.

Rotþró fyrir reiðhöll þarf að víkja og tengja þarf klósett við fráveitukerfi Mosfellsbæjar. Málið er í vinnslu á vegum Hauks og væntanlega sleppur Hörður við kostnað vegna þessa.

     

5

Framtíðarsýn 14. apríl

 

Við þurfum að fá sem flesta félagsmenn á stefnumótunarfundinn 14. apríl

     

6

Önnur mál

Verkefnalisti stjórnar til starfsmanna félagsins:

     

8

Styrktarbeiðnmi sem send var inn til Mosfellsbæjar í Nóvember s.l. er komin í afgreiðsluferli.  Eyjólfur Árni verkfærðingur, sem er að leysa Jóhönnu bæjarverkfræðing af, hitti Hákon og Hauk í dag. Farið var yfir hitakerfismál í reiðhöllinni og margt fleira. Farið var yfir fleiri verkefni, ss. snjógildrur og rennur og hitakerfið, planið fyrir neðan reiðhöllinni sem vantar mikið stabilitet í efsta lagið þar c.a. 20 cm.burðarlag. Bæjarverkfræðingur bað um máltöku fyrir að laga planið. Hann viðraði ýmis fleiri mál eins og t.d. að malbika að Harðarbóli, fyrir framan reiðhöll og ræsi á planið, og bað um magntölur fyrir það. Rædd var lýsing við Leirvogstungur og lýsingu á Tungubakkahring.

Formaður sýndi honum líka teikningar að skipulagi. Fundurinn var gagnlegur að mati Hákons og Hauks sem sátu fundinn og Eyjólfur sýndi mikið frumkvæði og áhuga.

Hugmynd er að fá götufræs til að ryðja út en það væri hægt að fá það fyrir lítið eða ekkert.

     

7

Atvinnutæki – kerrupláss: Bærinn vill að stóru 12 metra flutningavagnarnir sem eru á stað þar sem ekki má leggja verði fluttir.  Þessir vagnar sem eru þrír taka mikið pláss á kerrustæðinu.

     

8

Rúllustæðið var til umræðu og það er til reynslu í ár. Ef vel gengur á eru hugmyndir um að gróðursetja mönina, loka stæðinu með hliði og taka gjald af þeim sem eru með atvinnustarfsemi.  Hestamenn eru ánægðir með þjónustuna að hafa heysala á staðnum, og það þarf ða finna varanlega lausn á þessu. Skipulag hverfisins gerir ekki ráð fyrir heystæðum utandyra, en við hestamenn þurfum að finna lausn.  Ef þessu verður haldið áfram þarf að láta teikna þetta og samþykkt af skilulagsnefnd bæjarins.

     

9

Umherfismálafundurinn sem umhverfisnefnd Mosfellsbæjar hélt:

Anna Lísa fór á fundinn fyrir hönd Harðar og talaði fyrir fjölgun reiðstíga og notaði tækifærið til að benda á að nota hrossaskít til upgræðslu. Varðandi lýðheilsu lagði hún til þrautabraut fyrir hesta í Ævintýragarðinum.

Unnið var í hópum til að safna hugmyndum fyrir stefnumótun bæjarins  í umhverfismálum.

     

10

Tungubakkahringur: Jóhannes Oddsson er að bera í veginn til að laga mestu drulluslökkin sem skapast hafa núna.

Engir rekstrarhringir hafa verið í gangi sl hálfa mánuð vegna þess hversu vegurinn er viðkævæmur.

Tungubakkahringurinn þarf að fá allsherjar yfirhalningu í sumar og bæjarverkfræðingurinn tók vel í þau skilaboð.  Það þarf að fá hann til að láta Ístak laga meðfram Tunguveginum sem þeir eyðulögðu. Tvisvar hefur Jóhanna bæjarverkfærðingur  tekið að sér að ræða við Ístak án árangaurs. Hákon mun ítreka þetta við afleysingarverkfræðinginn Eyjólf Árna.

     

11.

Fjármál og styrkir:

Mosfellsbær mun greiða okkur fastan samning c.a.8,5-10 milljónir á næstu dögum fyrir árið 2018. Félagið á nú þegar 7.800.000 krónur. Í ljósi þessarar fjáhagsstöðu var tekin ákvörðun um að fara í hitakerfisframkvæmdir í reiðhöllinni.

     

12

Fatlaðir á laugardögum:

Reyna að vera úti alla dagana, en ef veður hamlar þá eru þau inni. Þetta hefur ekki verið vandamál í vetur nema einu sinni að mati Berglindar Árnadóttur.

     

13

Til upplýsinga til stjórnar:

Erna og Hákon fóru með koníak og viðurkenningarskjal í níræðisafmæli Ingimars Sveinssonar með þökkum fyrir framlag til hans til hestamennskunar

     

14

Hreinsunardagurinn sumardaginn fyrsta:

Stjórnin tekur að sér í ár að skipuleggja hreinsunardaginn. 19. apríl  verður hreinsunardagurinn fyrir hádegi og firmakeppnin eftir hádegi.

     

15.

Dagur íslenska hestsins:

Ákveðið að agitera fyrir því að Harðarfélagar taki þátt í reiðinni þann 1. maí.

Rúnar tekur að sér að agitera fyrir þessu.

   

16

Landsmót í Reykjavík

Sjálfboðaliðastarf skipulagt af Landsmótsnefnd. Ekki hefur verið farið framá vinnuframlag frá Herði enn. Rætt var um hvort ætti að hafa samstöðu meðal félaganna t.d. með að hafa úlpur merktar Herði eins og áður.  Áður hefur stjórn félagsins samþykkt að svartir og grænir keppnisjakkar séu jafngildir félagsbúningar Harðar. Svo verður áfram.

Óskað verður efitr því að Hólmfríður Ólafsdóttir veðrur sett í úlpunefnd sem leiti tilboðs frá Brosbolum, Margt Smátt, Cintamani, 66N, Hrímni ofl í félagsúlpur.

Rætt var um grill fyrir landsmótþátttakendur – keppendur og áhangendur. Skipuleggja grill í Harðarbóli á föstudeginum eftir að formlegri dagskrá lýkur.

 

 

Hófí, Stína og Gígja settar í úlpunefnd

   

16

Verkefnalisti stjórnar:

 

 

     
 

Fundartími stjórnar:

 

Fyrsti þriðjudagur mánaðar kl. 17:30

Allir stjórnarmenn