Fáksreið var farin laugardaginn 27.apríl í heldur risjóttu veðri.

Um 60 Harðarfélagar fóru ríðandi í Fák laugardaginn 27.apríl. Veðrið var heldur risjótt, en fólk lét það ekki á sig fá. Tekið var á móti Harðarfélögum með frábærum veitingum að hætti Fákskvenna og þökkum við kærlega fyrir okkur.