- Nánar
-
Skrifað þann Fimmtudagur, maí 12 2016 20:44
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Íþróttamót Harðar 2016!!
Verður haldið á Varmárbökkum helgina 20. -22.maí 2016.
Keppt verður í öllum hefbundnum greinum í eftirfarandi flokkum
Meistaraflokkur
1.flokkur
2.flokkur
Ungmennaflokkur
Unglingarflokkur
Barnaflokkur
Pollaflokkur 3gangur
Skráningargjaldið er í hringvallargreinarnar 3500kr og 2500kr í skeiðið, 1000kr í pollaflokk
Við hlökkum til að sjá sem flesta í Mosfellsbænum og lofum við góðri skemmtun. Skráning er á
http://www.sportfengur.com/index.htm
Kær Kveðja Mótanefnd Harðar
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, maí 11 2016 09:50
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Í dag verður plastgámur við reiðhöllina kl.16.00 - 19.00. Eins og áður má bara plast fara í gáminn.
- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, maí 09 2016 11:45
-
Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Fræðslufundur um reiðvegi og kortasjá hjá Hestamannfélaginu Herði þriðjudaginn 10 maí kl. 20.00 – 21.30.
Halldór H. Halldórsson og Sæmundur Eiríksson frá Samgöngunefnd LH ræða um reiðvegi og kynna
notkunarmöguleika í kortasjá reiðleiða fyrir undirbúning hestaferða.
Kveðja fræðslunefnd Harðar
- Nánar
-
Skrifað þann Sunnudagur, maí 08 2016 21:27
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Á félagsfundi sem haldinn var í Herði 13.apríl sl. var samþykkt að félgsjakkar Harðar geti bæði verið svartir og grænir, hvít skyrta, rautt bindi, hvítar buxur og svört stígvél.
Svarti jakkinn er ekki félagsjakki nema að Harðarmerkið sé saumað í brjóstið á jakkanum.