Líkamsbeiting - helgarnámskeið með Súsönnu Sand
- Nánar
- Skrifað þann Miðvikudagur, febrúar 03 2016 10:37
- Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Efnagreining ehf býður uppá heyefnagreiningar fyrir hestamenn. Heyefnagreining 1. Prótein, tréni, meltanleiki (NIR greining) og útreiknaðar fóðureiningar. Kostar 3500 kr. án vsk pr sýni. Heyefnagreining 3. Prótein, tréni, meltanleiki og útreiknaðar fóðureiningar. Kalsíum, magnesíum, kalí, natríum, fosfór, brennisteinn, járn, zink, kopar, mangan og selen. Kostar 8500.- kr. án vsk pr sýni.
Nú rétt í þessu var Reynir Örn Pálmason valinn Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2015. Ykkur er því boðið í veislu í Harðarból kl.20.30 í kvöld.
Ágæti félagsmaður
Helgina 22-24 janúar ætlar hestamannafélagið Hörður að bjóða börnum, unglingum og ungmennum uppá frítt námskeið í Treki.
Fullorðinir geta einnig skráð sig en það kostar 8.000 kr fyrir þá. Krakkarnir hafa forgang.
Trec er frábær leið til að auka áræðni, kjark, þolinmæði og lipurð í bæði hesti og knapa. Þú kynnist og upplifir hestinn á annan og spennandi hátt.
Trec er eykur fjölbreytni í þjálfun og er einnig skemmtileg keppnisgrein. Þrautirnar eru margar og fjölbreyttar, dæmd er reiðmennska, samspil, þjálni og flæði milli Þrauta, ekki tímataka.
Sýnikennsla verður á föstudagskvöldið þar sem allir eru velkomnir, síðan verður kennt fyrir og eftir hádegi bæði á laugardag og sunnudag.
Skráning er á http://skraning.sportfengur.com
Takmarkað er af plássum eru í boði