Sigurður Sigurðarson kosinn íþróttamaður Mosfellsbæjar.

Íþróttamaður Mosfellsbæjar var kjörinn Sigurður Sigurðsson knapi en árangur hans á síðasta ári var glæsilegur, enda hefur hann hefur verið í fremstu röð knapa hér á landi síðustu ár. Hér er að finna afrekalista hans og ummæli sem um hann voru höfð. Aðrir sem fengu viðurkenningu við þetta tilefni eru eftirtaldir: Íslandsmeistarar á árinu: Kristján Magnússon Landliðsfólk: Sigurður Sigurðarson Guðmundur Einarsson Kristján Magnússon Efnilegustu einstaklingar 16 ára og yngri: Linda Rún Pétursdóttir Hreiðar Hauksson Íþróttamaður Harðar árið 2002 er Sigurður Sigurðarson. Sigurður er fæddur 1969 og er því á þrítugasta og fjórða aldursári. Hann er búsettur að Þjóðólfshaga í Rangárvallasýslu. Sigurður hefur verið félagi í hestamannafélaginu Herði frá því hann var 15 ára gamall og er því rótgróinn félagsmaður. Sigurður æfir afar ötullega, hann æfir alla daga vikunnar, nánast árið um kring. Hann æfir frá 2 og allt upp í 10 stundir á dag, en hann er víðfrægur meðal hestamanna fyrir eldlega ástundun og áhuga á íþróttinni. Hann þjálfar ótrúlegan fjölda hrossa á ári hverju og er afar eftirsóttur sem knapi. Árið 2002 var einstaklega árangursríkt hjá Sigurði og reyndar náði hann á þessu ári einum besta árangri frá upphafi síns ferils í hestamennskunni. Á Landsmóti hestamanna 2002 varð hann í öðru sæti í B-flokki gæðinga með hestinn Bruna frá Hafsteinsstöðum og þriðji í tölti með hryssuna Fífu frá Brún, en á Landsmót komast aðeins úrvalshross sem hafa farið í gegnum forkeppni hjá sínu félagi. Hann vann til tveggja Íslandsmeistaratitla á árinu, þar á meðal vann hann gæðingaskeiðið á Fölva frá Hafsteinsstöðum og varð hann stigahæsti knapi Íslandsmótsins í meistaraflokki, en sá titill er einn stærsti titill Íslandsmótsins. Reyndar vann hann allt gæðingaskeið í meistaraflokki á árinu á opnum mótum á vegum Landsambands hestamanna. Hann var valinn til að keppa fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu í Finnlandi og komst þar í úrslit í þremur greinum. Sigurður varð annar í stigakeppni Meistaradeildar hesta 847 en í þá keppni komast aðeins bestu knapar landsins sem hafa á valdi sínu allar keppnisgreinar hestaíþrótta. Sigurður náði frábærum árangri á Suðurlandsmótinu og var þar í efstu sætum í nánast öllum greinum og sigraði þrjár greinar. Á Íslandsbankamótinu á Akranesi vann hann til fyrstu verðlauna í gæðingaskeiði og tölti og var í efstu sætum í fimmgangi, fjórgangi, slaktaumatölti og 250 metra skeiði. Hann var jafnframt stigahæsti knapi mótsins. Hann vann til verðlauna á fjöldamörgum félagsmótum og hjá sínu eigin félagi vann hann B flokk gæðinga, tölt meistara og 250 metra skeið á Gæðingamóti félagsins. Á íþróttamóti Harðar vann hann fimmgang í 1. flokki, tölt í meistaraflokki, slaktaumatölt í meistaraflokki, gæðingaskeið og var stigahæsti knapi í 1. flokki. Að auki var hann í úrslitum í öllum greinum sem hann keppti í á þessum stærstu mótum Harðar. Sigurður er einnig atkvæðamikill í sýningum kynbótahrossa og hefur sýnt 22 hross á árinu en 14 þeirra fengu 1. verðlaun og meðaleinkunn hrossanna var 7,98 en hestur þarf einkunina 8,0 til að fá 1. verðlaun í kynbótadómi. Sigurður er í 2 sæti á heimslistanum (world ranking) yfir knapa í gæðingaskeiði og hann er einnig ofarlega í fleiri greinum á þessum lista. Ofangreindur listi er langt því frá tæmandi en á árinu vann hann samtals til 31 gullverðlauna í íþróttagrein sinni ásamt öðrum verðlaunum. Sigurður vann einnig það afrek að vera með hæstu einkunn í gæðingakeppni á árinu, en hann náði einkuninni 9,29 sem er með hæstu einkunum sem gefnar hafa verið í B flokki gæðinga. Árangur hans getur því ekki skoðast öðruvísi en framúrskarandi og fáir ef nokkrir knapar á landinu geta státað af öðrum eins árangri á árinu. Þar skiptir mestu að Sigurður er jafnvígur í öllum greinum hestaíþróttarinnar en fáir knapar hafa það á valdi sínu. Á síðasta ári sá Sigurður um þjálfun unglinga í Herði og sá meðal annars um að undirbúa unglingana fyrir keppni á Landsmóti. Hann skipulagði þjálfunarbúðir fyrir þau og fylgdi þeim eftir fram að Landsmóti en taka má fram að unglingarnir náðu frábærum árangri undir hans stjórn. Hann er góð fyrirmynd ungra knapa í félaginu og með starfi sínu sem unglingaþjálfari tendraði hann mikinn áhuga margra ungu knapanna í félaginu með eldmóði sínum og brennandi áhuga og hvatningu. Sigurður kemur ávallt vel fram í keppni og sýnir drengskap og kurteisi í allri framgöngu við mótherja sína. Sigurður þykir hafa einstakt næmi á hesta og ólíka hæfileika þeirra. Hestar eru lifandi verur og til að laða fram bestu kosti hests og fá hann til að sýna þá í nokkurra mínútna keppni þarf gífurlega þjálfun og mikinn undirbúning þar sem lokatakmarkið er að hestur og maður vinna saman sem einn. Þessu hefur Sigurður náð frábærlega á vald sitt og nær nánast undantekningalaust að sýna hross með þeim hætti að hæfileikar þeirra njóta sín til fulls. Þetta hefur skilað Sigurði í það að geta með réttu talist einn af bestu knöpum landsins. Keppnisárangur Sigurðar Sigurðarsonar árið 2002: Mót í hestamannafélaginu Herði: Árshátíðarmót Harðar Hylling frá Kimbastöðum 1. sæti. Vetrarmót Harðar Smiður frá Miðsitju 2. sæti. Íþróttamót Harðar Tölt meistara – Hylling 1. sæti. Gæðingaskeið meistara – Fölvi 1. sæti. Stigahæsti knapi meistara 1. sæti. Tölt T2 meistara – Úlfur 1. sæti. 250 m skeið – Fölvi 1. sæti. Fimmgangur opinn flokkur – Blakkur 1. sæti. Ísl. tvíkeppni 1. sæti. Tölt opinn flokkur 2. sæti. Fjórgangur opinn flokkur 3. sæti. Gæðingamót Harðar B flokkur – Fífa frá Brún 1. sæti. Tölt – Númi frá Miðsitju 1. sæti. 250 m skeið – Fölvi 1. sæti. Unghross í tamningu 2. sæti. Gæðingakeppni Mána B flokkur – Bruni frá Hafsteinsstöðum 1. sæti. - Númi frá Miðsitju 2. sæti. A flokkur – Skafl frá Norðurhvammi 2. sæti. Opin mót: Meistaradeild Tölt – Fífa frá Brún 1. sæti. Fjórgangur – Oliver frá Austurkoti 4. sæti. Fimmgangur – Stjarni frá Búlandi 5. sæti. Hraðafimi- Númi frá Miðsitju 1. sæti. Hraðaskeið- Fölvi frá Hafsteinsstöðum 1.sæti. Gæðingafimi- Fróði frá Miðsitju 2. sæti. Skeið – Fölvi frá Hafsteinsstöðum 3. sæti. 150 m skeið – Fölvi frá Hafsteinsstöðum 2. sæti. Ístölt – Fífa frá Brún 2. sæti. Íslandsmót í Víðidal 2002 Stigahæsti knapi Íslandsmóts í meistarafl, sem er einn stærsti titill Íslandsm. Gæðingaskeið – Fölvi frá Hafsteinsstöðum 1. sæti. Tölt – Fífa frá Brún 3. sæti. Stigahæstur í meistaraflokk 1. sæti. Landsmót B flokkur – Bruni frá Hafsteinsstöðum 2. sæti. Tölt – Fífa frá Brún 3. sæti. Fljúgandi skeið – Fölvi frá Hafsteinsstöðum 3. sæti. 5 v stóðhestar 4. sæti. Hæsta einkunn í B flokk inn á Landsmót. Hæsta 5v stóðhest inn á Landsmót. Íslandsbankamót Akranesi Tölt meistara – Hylling 1. sæti. Gæðingaskeið meistara – Fölvi 1. sæti. Fimmgangur – Gyllir Keflavík 3. sæti. Fjórgangur – Hylling 3. sæti. Stigahæstur meistara 1. sæti. Suðurlandsmót Tölt meistara- Hylling 1. sæti. Gæðingaskeið meistara – Fölvi 1. sæti. Fimmgangur meistara – Gyllir 3. sæti. 250 m skeið – Fölvi 1. sæti. Tölt opinn flokkur – Hákon 2. sæti. Opið íþróttamót Geysis Tölt meistara – Hylling 1. sæti. Ísl. tvíkeppni 1. sæti. Fjórgangur meistara – Hylling 2. sæti. Fimmgangur meistara 2. sæti. Gæðingaskeið meistara 1. sæti. Stigahæsti knapi 1. sæti. Andvaramót – stærsta opna gæðingakeppni sumarsins fyrir utan Landsmót. B flokkur – Fífa 1. sæti. A flokkur – Skafl 1. sæti. Tölt meistara 1. sæti. Tölt opinn flokkur eftir forkeppni 1. sæti 250 m skeið – Fölvi 3. sæti. Kynbótasýning á Hellu 5v hestar 1. sæti. Sýnd 22 kynbótahross á árinu, þar af 14 í 1. verðlaun og meðaleinkunn af öllum hrossunum 7,98. Hæsta einkunn í gæðingakeppni á árinu yfir landið: 9,29. Sigur í gæðingaskeiði meistara á öllum opnum mótum á árinu. Sigur í 7 opnum töltmótum af 10 á árinu á 3 hrossum. Nr. 2 á World Ranking List í gæðingaskeiði