Hnakkfastur – sætisæfinganámskeið fyrir minna vanir

 
Áseta knapans er eitt því mikilvægasta sem hann þarf að tileinka sér. Hún fegrar ekki bara heildarmyndina, heldur er knapi í góðu jafnvægi þægilegri fyrir hestinn, notar skilvirkari ábendingar til að stjórna hestinum og siðast en ekki síst bætir það öryggið þar sem knapinn dettur síður af baki. Kosturinn við ásetuæfingar í hringtaum er að knapinn getur einbeitt sér að sínum eigin líkama og ásetu án þess að þurfa að stjórna hestinum. Á námskeiðinu gerum við æfingar aðallega á hesti en líka á gólfi með markmiðið að bæta líkamsstöðu og -vitund okkar á hestbaki sem og í daglegu lífi. Á námskeiðinu er unnið í pörum þar sem annar hringteymir og hinn gerir æfingar á hesti til skiptis.
Nemendur fá hest til afnota og þurfa bara að mæta með hnakk og hjálm.
Max 6manns.
Kennt verður í 6 skipti á miðvikudögum kl 17:00
Dagsetningar 2021:
7.4.
14.4.
21.4.
28.4.
5.5.
12.5.
Kennari verður Fredrica Fagerlund
Verð: 19.000 kr
 
Skráning á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með kt og fullt nafn 🙂