Átak um skógrækt og uppgræðslu á Langahrygg

Í tengslum við Dag umhverfisins 2011, sem að þessu sinni er tileinkaður skógum, var á þriðjudag skrifað undir samning milli Mosfellsbæjar annars vegar og Skógræktarfélags Mosfellsbæjar og Hestamannafélagsins Harðar hins vegar, um skógrækt og uppgræðslu á Langahrygg í Mosfellsdal.  Ástand svæðisins, sem er um 300 hektarar að stærð, hefur verið fremur báglegt með tilliti til gróðurs og örfoka melar áberandi.   Markmiðið með þessari samvinnu er  að breyta örfoka landi í gróðurríkt svæði þar sem fara saman möguleikar til hrossabeitar, skógræktar og útivistar.  Um leið mun aukinn gróður mynda skjól og stuðla að minni vindstreng á þessu svæði.  Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar er skv. samningnum úthlutað afmarkað svæði til skógræktar og gróðursetningar og hestamannafélaginu er falið umsjón með uppgræðslu á afmörkuðu svæði með hrossataði, með það að markmiði að græða upp landið og skapa beitarland, enda um góðan áburð að ræða.  Aðilar eru einhuga um að með sameiginlegu átaki megi lagfæra örfoka og illa farið land og breyta því í svæði þar sem saman getur farið fallegur gróður og skóglendi, reiðstígar og beitarhólf, sem muni nýtast bæjarbúum til framtíðar.