Járninganámskeið og fyrirlestur.

Sigurður Torfi Sigurðsson járningameistari og formaður Járningamannafélags Íslands heldur fyrirlestur um járningar í Harðarbóli þriðjudaginn 30. janúar 2007, kl.20:00. Aðgangseyrir er 500 krónur. Veitingasala á staðnum. Í framhaldinu mun Sigurður kenna á járninganámskeiði helgina 2.-4. febrúar 2007, bæði fyrir byrjendur og lengra komna, sem Hestamannafélagið Hörður stendur fyrir. Bóklegur tími er sameiginlega á föstudagskvöldinu, verkleg kennsla í 3-4 klst. fyrir hvort námskeið,laugardag og sunnudag. Námskeiðið er öllum opið, en Harðarfélagar hafa forgang. Hámark 6 þátttakendur á hvort námskeið. Verð kr. 15.000.- Greitt skal við skráningu. Skráning í Harðarbóli 26.janúar milli 19:30 og 20:30 og upplýsingar í síma 5668282 á sama tíma. Fræðslunefnd Harðar.