Sýnikennsla með Ingimari Sveinssyni

Allir hestamenn þekkja Ingimar Sveinson frá Hvanneyri, sem meðal annars er höfundur bókarinnar Hrossafræði. Um langt skeið hefur hann haldið helgarnámskeið þar sem hann bæði segir frá og sýnir hvernig hann nálgast ósnerta hesta. Hann hefur kallað þessa nálgun „Af frjálsum vilja“. Aðferðin hefur vakið mikla athygli og nú gefst áhugasömum hestamönnum tækifæri til að sjá og heyra Ingimar beita þessari aðferð.

Á einu kvöldi, fimmtudaginn 29. nóvember, mun hann sýna okkur það sem hann yfirleitt gerir á heilu helgarnámskeiði. Hann mun halda stuttan fyrirlestur um aðferðir sínar og tekur algjörlega ósnerta fola og sýnir áhorfendum hvernig hann nálgast unghross samkvæmt sínum aðferðum. 

Þetta verður sannkölluð veisla fyrir okkur hestamenn, veisla sem mun hefjast kl. 18:00 og standa langt fram á kvöld. Veitingar verða til sölu, samlokur og heitir og kaldir drykkir.

Hestamenn! Sjáumst í Herði á fimmtudagskvöld. Sýnikennslan hefst stundvíslega í Harðarbóli kl. 18:00 aðgangseyrir er 1.500 krónur

Fræðslunefndir hestamannafélaga höfuðborgarsvæðisins