Stjórnarfundur 9.apríl 2013

Stjórnarfundur 09. apríl 2013 kl 17:15

Haldin í Harðarbóli

Mætt: Jóna Dís, Ragnhildur, Gyða, Alli, Ólafur, Gylfi og Gunnar

  1. Fundagerð síðasta fundar lesin upp og samþykkt.
  2. Hestadagar í Reykjavík voru haldnir á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi og þóttu takast mjög vel. Reiðhöllin var opin seinnipartinn á föstudaginn þar sem fjöldi bæjarbúa komu nutu návistar við hesta og hestamenn, teymt var undir börnum. Íslensk Ameríska gaf kjötsúpu sem gestum var boðið upp á við miklar vinsældir. Sýninginn Æskan og Hesturinn fór fram á sunnudeginum í Reiðhöllinni í Víðidal að venju. Harðarfélagar voru áberandi á sýningunni þar sem starf okkar með fötluð börn veitti verðskuldaða athygli. Stjórnin þakkar öllum sem að hestadögum og sýningunni komu fyrir þeirra framlag.
  3. JDB átti fund með útgáfunefnd Harðar 25. ars sl., sjá fundagerð nefndarinnar.
  4. Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum 22. mars að gera samning til 9 ára um fast framlag til viðhalds reiðvalla félagsins. Sjá bréf 22. mars 2013. JDB gengur frá samningi við bæjarfélagið.
  5. Ný heimasíða Harðar var tekin í notkun um síðustu mánaðarmót. Þykir uppfærsla hennar hafa tekist vel og verður unnið áfram við frágang og innsetningu á efni og myndum.
  6. Ákveðið að bjóða bæjarstjórn í reiðtúr. JDB ákveður dagsetningu í samráði við þá og Ólaf.
  7. Ákveðið að senda bréf til þeirra félagsmanna sem ekki hafa greitt félagsgjöld. Nauðsynlegt er að uppfæra félagatalið þannig að það endurspegli sem best virka félaga á hverjum tíma.
  8. Hreinsunardagur á vegum umhverfisnefndar verður að venju á Sumardaginn fyrsta. Setja þarf tilkynningu á heimasíðu og facebook.
  9. Fáksmenn koma ríðandi uppeftir til okkar (Hlégarðsreið) 27.apríl og munu Harðarkonur sjá um sölu veitinga í Harðarbóli.
  10. Samykkt var tillaga JDB að halda fund með beitarnefnd.
  11. Rætt var um áhuga félagsmanna um stækkun Harðarbóls og hvernig standa megi að kynningu á verkefninu.
  12. GÖS sat síðasta fund reiðveganefndar. Þar kom fram að Mosfellsbær leggur fram 600.000 til viðhalds reiðvega í ár og að félagið fékk úthlutað 2.000.000 úr reiðvegafé Vegagerðarinnar. Farið verður viðhald á hálsinum yfir Blikanesið við gólfvöllinn, áningagerði klárað við nýja reiðveginn við Skarhólamýri og ef tilskilin leifi fást verður reiðvegurinn upp í dal færður sunnan megin við ánna frá kirkju að Lundi.

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl 19:30