- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 16 2018 20:07
-
Skrifað af Sonja
Á föstudagsmorgun 19.1. verður reiðhöllinni öll lokuð því það er verið að hefla gólfið. Verður búið um sirka kl 12:00.
Takk fyrir skilning og endilega látið þetta berast
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 16 2018 09:58
-
Skrifað af Sonja
Nú er kominn tími til að hrista aðeins upp í hópnum og skella í eitt konukvöld í Harðarbóli laugardaginn 3. febrúar. Kl 20:00 Það verður kúrekaþema og hvetjum við allar til þess að dusta rykið af kúrekastígvélunum og skella upp hattinum!
Það verða léttar veitingar í boði og ykkur er frjálst að koma með ykkar drykki með ykkur en það verður einnig bar á svæðinu. Miðaverð er 3000 kr. og rennur afgangurinn beint til fræðslunefnd fatlaðra.
Endilega látið þetta fréttast og peppið hvor aðra í að mæta og gera þetta kvöld eftirminnanlegt saman !🤠
Þetta kvöld er vínkonukvöld svo við viljum endilega að þið dragið vinkonurnar með
ATH 18 ára aldurstakmark!
- Nánar
-
Skrifað þann Laugardagur, janúar 13 2018 17:34
-
Skrifað af Sonja
Laust í einkatima hjá Fredricu Fagerlund. Þriðjudaga Kl 1830-19 og 19-1930. Skráning fer fram í skilaboðnum því sportfengur er að stríða okkur. Skrá þú þig sem fyrst :)
Einnig er laust hjá Súsanna og Ragnheiður, aðallega fyrir hádegi miðvikudaga og föstudaga, rest eftir samkomulag, hafið bara samband og spyrja annaðhvort yfir facebook Hestamannafélag eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
- Nánar
-
Skrifað þann Laugardagur, janúar 13 2018 12:11
-
Skrifað af Sonja
Leó er atvinnujárningarmaður og ætlar hann að fræða okkur um hófhirðu og járningar
Fimmtudagskvöldið 25.janúar Kl19:00
í anddyri Reiðhallarinar. Fræðsluerindi er FRÍTT!
Mjög gott tækifæri fyrir alla hesteigendur að fræðast meira um hófhirðu og járningar og hvað þarf að hafa í huga þegar hesturinn er tekinn á hús, hvernig heilbrigðir hófar eiga að líta út, hvernig við viljum hafa járningu og hvenær þarf að járna hestinn upp.
Allir velkomnir. Hlökkum til að sjá sem flesta.
Kaffi í boði. Frítt inn.