- Nánar
-
Skrifað þann Fimmtudagur, júlí 01 2021 19:46
-
Skrifað af Sonja
Að gefnu tilefni skal enn og aftur áréttað að bannað er að hafa lausa hunda í hesthúsahverfinu og á reiðvegum. Nýverið hlaust óhapp af lausagöngu hunds og það vill enginn hafa slíkt á samviskunni.
Virðum reglur, það gengur allt betur þannig.
- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, júní 28 2021 15:09
-
Skrifað af Sonja
"Tilkynning frá Veitum - Framkvæmdir meðfram reiðstígnum við Leirvogstungu. Í dag, mánudaginn 28 júní erum við hjá Veitum að hefja verkefni með Mílu og Nova við gröft á lagnaskurði vegna nýrrar heimtaugar í fjarskiptamastur sem á að fara reisa. Vinnusvæðið er meðfram reiðstígnum við Leirvogstungu. Þetta tekur nokkra daga, gerum ráð fyrir að byrja í dag, mánudag og vera búin í næstu viku. Þetta felur í sér umferð vinnuvéla og einnig gæti verið eitthvað af tækjum og tólum á reiðstígnum. Við leggjum okkur fram við að valda sem minnstu raski og hægt er. Kær kveðja, starfsfólk Veitna"
https://www.facebook.com/sveitarfelagid.mosfellsbaer/posts/4092371307514780
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, júní 15 2021 15:37
-
Skrifað af Sonja
Athygli er vakin á að gjald fyrir beit er fallið á eindaga. Þeir sem eiga eftir að greiða kröfu í heimabanka geri það sem fyrst.
- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, júní 14 2021 19:14
-
Skrifað af Sonja
Á heimasíðu félagsins er nú búið að setja upp hnappa/flipa til að skrá bæði atvik og ábendingar.
Mjög mikilvægt er að stjórn félagsins viti af því sem kann að koma uppá, hvort sem verður slys og viðbragðsaðilar eru kallaðir til, eða það verður nærri slys/óhapp. Öðruvísi er erfitt að sinna úrbótum.
Ábendingar um hvað má betur fara í umhverfinu og þeim mannvirkjum sem við nýtum saman er einnig mikilvægt að skrá svo við getum gert viðeigandi ráðstafanir. Fliparnir eru hægra megin á síðunni undir Flýtileiðir.
Kveðja, Stjórnin