Stjórn|
Nefndir
| Félagsheimili|Reiðhöll|Um Hörð|Hafa samband
Skráning í felagið

:: september 2010

sunmánþrimiðfimföslau
01020304
05060708091011
12131415161718
19202122232425
2627282930

:: Kannanir

:: Hver er inni

Við höfum 7 gesti og 1 meðlim tengda
Umferðarreglur Prenta Rafpóstur
Skrifað af Þórir Örn Grétarsson   
föstudagur, 16 mars 2007

í reiðhöll og reiðgerði Harðar

1. Látið vita áður en teymt er inn á völlinn. Farið á bak og af baki inn á miðjum velli en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.

2. Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð. Þeir sem ríða hægari gangtegund skulu ávallt víkja fyrir þeim er hraðar fara.

3. Tvær hestlengdir skulu ávallt milli hesta. Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo hesta til reiðar.

4. Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt ef riðinn er sami hraði. Undantekning frá því er ef annar knapi ríður hraðar skal honum eftirlátin ytri sporaslóð.

5. Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð

6. Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf er best að gera slíkt inni á miðjum velli nema um annað sé samkomulag þeirra í milli er stunda æfingar á vellinum hverju sinni.

7. Hringtaumsvinna fer enganveginn saman við þjálfun í reið og skal víkja nema um annað sé sérstaklega samið.

8. Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa.

9. Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum.

10. Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hesta þar.

11. Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.

12. Öll þjálfun á völlum sem félagið leggur félagsmönnum til er á eigin ábyrgð.

 

september 2010

sunmánþrimiðfimföslau
01020304
05060708091011
12131415161718
19202122232425
2627282930