Áburðurinn kominn!!!!

Áburðurinn kominn!!!! Áburðurinn kominn!!!!!
 
Og af því tilefnið munum við hefja ahendingu á áburðinum klukkan 17:30 síðdegis.
Allir skuldlausir félagsmenn sem hafa haft hólf munu fá afhentan áburð í dag þriðjudaginn 26. maí og á morgun miðvikudaginn 27. maí á sama tíma.
Þeir sem hafa haldið til haga plastpokunum frá síðustu árum vinsamlegast komið með þá og við munum fylla á þá. Þeir sem þurfa nýja poka vinsamlegast geymið þá til næsta árs. Við sýnum ábyrgð í umhverfismálum og gernýtum plastið!!
 
Hvað leigu á beitarhólfunum varðar er rétt að minna á að beitarþegar skulu hafa gengið frá greiðslu beitargjaldsins fyrir 1. júní n.k. Að öðrum kosti verða hólfin endurúthlutuð öðrum umsækjendum.
 
Ljóst er að hægt verður að úthluta nokkrum nýjum aðilum beit en ekki þó öllum sem sóttu um. Gengið verður frá því á næstu dögum og má því ætla að ljóst verði innan viku hverjir fá beit þetta árið og hverjir fá ekkert.   
 
Beitarnefnd