Firmakeppnin á sumardaginn fyrsta.

Nú er komið að hinni árlegu firmakeppni.  Hún verður haldin á sumardaginn fyrsta kl.14.00.  Skráning er í reiðhöllinni um morguninn. Keppt er í hefðbundnum flokkum. Pollar, börn, unglingar, ungmenni, konur 1, konur 2, karlar 1, karlar 2, heldri menn og konur og opinn  flokkur.  Verðlaunaafhending verður í Harðarbóli, þar sem seldar verða vöfflur og kakó.

Hlökkum til að sja ykkur

Firmanefndin