Bikarkeppni LH aflýst

Vegna dræmrar skráningar hefur Bikarkeppni LH verið aflýst. 35 skráningar bárust frá 28 þátttakendum. Félögin sem skráðu lið til leiks voru þessi:

 

 

Hörður, Fákur, Sprettur, Léttir, og Glæsir.

LH þakkar þeim sem skráðu sig auðsýndan áhuga og framtakssemi. Bikarkeppni LH kemst án efa á laggirnar á næsta ári og biðjum við þá áhugasama að sýna áhuga sinn í verki og vera með í stórskemmtilegri liða- og einstaklingskeppni.

Þeir þátttakendur sem höfðu skráð sig fá að sjálfsögðu skráningargjöld sín endurgreidd og þurfa einungis að hafa samband við skrifstofu LH í síma 514-4030 eða senda tölvupóst á netfangið   

Stjórn LH