Móttaka í Harðarbóli 26.apríl 2013

26.apríl tók formaður Harðar á móti hópi eldri kennara sem eitt sinn kenndu í "gamla" Varmárskóla. Hópurinn hittist einu sinni í mánuði skólamánuðina undir styrkri stjórn Birgis D. Sveinssonar sem var kennari og síðar skólastjóri við Varmárskóla í yfir 40 ár. Hópurinn hefur heimsótt fjöldann allan af fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum sl. 10 ár. Formaðurinn bauð uppá gúllassúpu og Líney Jósefsdóttir bakaði köku sem boðið var uppá í eftirrétt. Helgi Sigurðsson mætti og sagði frá sögu félagsins og síðan var farið í reiðhöllina þar sem mæðgurnar Katarína og Súsanna sýndu listir sína. Hópurinn hafði á orði hversu ótrúelga mikil starfsemi færi fram í Herði og hversu gaman væri að kynnast strarfinu og koma í reiðhöllina þar sem nánast enginn hafði komið áður. Þetta var mjög ánæguleg heimsókn og gaman að kynna starfið á þennan hátt.